Forvarnir

Það er 18 ára aldurstakmark í vefverslun SNUS.IS. Allir sem versla hjá okkur nikótínpúða þurfa að skrá kennitöluna sína til að staðfesta aldur. Ef einstaklingur undir 18 ára aldri er uppvís að því að segja ósatt til um aldur verður atvik tilkynnt til foreldra eða forráðamanna. Ef þörf er á endurgreiðslu við brot á reglu um aldurstakmark er greiðsla aðeins bakfærð gegn beiðni foreldra eða forráðamanns.

Upplýsingar um Nikótínpúða og við hverju þeir eru notaðir
Nikótínpúðarnir sem til sölu eru á SNUS.IS geta dregið úr fráhvarfseinkennum þegar hætt er að reykja eða neyta tóbaks á annan máta. Það minnkar því þannig hættu á að reykingafólk sem vill hætta að reykja eða þeir sem vilja hætta munntóbaki/neftóbaki, byrji aftur á tóbaksneyslunni eða auðveldar þeim sem vilja ekki eða geta ekki hætt tóbaksneyslu, að draga úr henni. Þegar þú hættir snögglega að útvega líkamanum nikótín úr tóbaki finnur þú fyrir ýmis konar vanlíðan sem kallast fráhvarfseinkenni. Með nikótínpúðum getur þú komið í veg fyrir eða a.m.k. dregið úr þessari vanlíðan með því að halda áfram að útvega líkamanum nikótíni í stuttan tíma.

Ekki má nota Nikótínpúða:
- ef um er að ræða ofnæmi fyrir nikótíni eða einhverju öðru innihaldsefni púðana (talin upp á hverri tegund fyrir sig)
- ef þú ert með alvarlegan hjartasjúkdóm
- ef þú hefur nýlega (innan 3 mánaða) fengið hjartaáfall eða slag.

Varnaðarorð og varúðarreglur
Leitið ráða hjá læknum áður en nikótín eru notað ef um er að ræða:
- einhvern hjarta- eða blóðrásarsjúkdóm
- ómeðhöndlaðan háþrýsting
- alvarlegan lifrarsjúkdóm
- alvarlegan nýrnasjúkdóm
- sykursýki og notkun insúlíns
- magasár
- ofvirkan skjaldkirtil
- æxli í nýrnahettu (krómfíklaæxli)

Ef þú ert með einhvern þessara sjúkdóma getur verið að ekki sé óhætt fyrir þig að neyta nikótíns.


Börn og unglingar
Einstaklingar yngri en 18 ára eiga ekki að nota nikótínpúða. Þeir sem ekki reykja, veipa, neyta munn- eða neftóbaks eiga ekki að nota nikótínpúða
Réttur skammtur handa fullorðnum getur valdið alvarlegri eitrun og jafnvel reynst banvænn litlum börnum. Því er mjög nauðsynlegt að geyma nikótínpúða alltaf þar sem börn hvorki ná til né sjá.

Notkun annarra lyfja samhliða nikótínpúðum
Látið lækninn vita um öll lyf sem eru notuð eða hafa nýlega verið notuð, þar með talin lyf sem fengin eru án lyfseðils.

Meðganga og brjóstagjöf
Það er mjög mikilvægt að hætta að tóbaksneyslu á meðgöngu, því tóbaksneysla getur valdið minni vexti hjá barninu. Hún getur einnig valdið fæðingu fyrir tímann og jafnvel andvana fæðingu. Best er að reyna að hætta tóbaksneysu án notkunar nikótíns. Ef það tekst ekki skal nikótín aðeins notað í samráði við heilbrigðisstarfsmanninn sem hefur eftirlit með meðgöngunni, heimilislækninn eða lækni. Forðast skal notkun nikótíns samhliða brjóstagjöf, þar sem nikótín finnst í brjóstamjólk og getur haft áhrif á barnið.

Hvernig nota á nikótínpúða
Setjið púðann undir efri vörina og hafið hann þar í u.þ.b. 30 mínútur. Hreyfið púðann til öðru hverju með tungunni. Ekki má nota meira en það sem nemur 100mg af nikótíni á dag. Athugið að púðar eru mismunandi í stærð og eru flestir á bilinu 0,5-0,7g. Ráðlagður dagskammtur fer því eftir stærð púða.
Púðar með styrkleika 1 (2mg/g): hámark 50 púðar á dag
Púðar með styrkleika 1 (4mg/g): hámark 24-50 púðar á dag 
Púðar með styrkleika 2 (6mg/g): hámark 16-32 púðar á dag
Púðar með styrkleika 2 (10mg/g): hámark 10-20 púðar á dag
Púðar með styrkleika 3 (12mg/g): hámark 8-16 púðar á dag
Púðar með styrkleika 3 (14mg/g): hámark 7-14 púðar á dag
Púðar með styrkleika 4 (16mg/g): hámark 6-12 púðar á dag
Púðar með styrkleika 4 (18mg/g): hámark 5-10 púðar á dag
Púðar með styrkleika 4 (20mg/g): hámark 5-10 púðar á dag
Púðar með styrkleika 4 (24mg/g): hámark 4-8 púðar á dag

Reykingum eða önnur tóbaksnotkun hætt
Lengd notkunar nikótínpúða er einstaklingsbundin, en er yfirleitt a.m.k. 3 mánuðir. Eftir það skal minnka skammt nikótíns smám saman. Ráðlagt er að hætta notkun þegar skammturinn er kominn niður 8-10mg á dag. 

Dregið úr reykingum eða annari tóbaksnotkun
Nikótínpúða er hægt að nota á milli þess sem neytt er tóbaks, til að lengja tóbakslaus tímabil með það að markmiði að draga úr tóbaksnotkun eins mikið og hægt er.

Ef tekinn er stærri skammtur en mælt er fyrir um
Ef of stór skammtur af nikótínpúðum hefur verið notaður, eða ef barn hefur í ógáti tekið inn púðana skal hafa samband við lækni, sjúkrahús eða eitrunarmiðstöð (sími 543 2222).

Ofskömmtun nikótíns getur orðið ef þú reykir samtímis notkun nikótínpúðana eða ef þú tekur of marga púða inn á of stuttum tíma. Einkenni ofskömmtunar eru m.a. ógleði, aukin munnvatnsmyndun, kviðverkur, niðurgangur, svitamyndun, höfuðverkur, sundl, heyrnartruflanir og verulegt máttleysi. Þegar um er að ræða stóra skammta geta þessum einkennum fylgt lágur blóðþrýstingur, veikur og óreglulegur púls, öndunarerfiðleikar, mikil þreyta, lost og krampar. 

 

Hugsanlegar aukaverkanir
Eins og við á um allar nikótínvörur geta nikótínpúðar valdið aukaverkunum en það gerist þó ekki hjá öllum.

Nikótínpúðar geta valdið aukaverkunum sem eru svipaðar þeim sem fram koma við notkun nikótíns sem gefið er í öðrum formum. Aukaverkanir eru almennt háðar skammti.

Algengustu aukaverkanirnar eru erting í munni eða koki á fyrstu vikunum. Aðrar algengar aukaverkanir eru sundl, höfuðverkur, meltingaróþægindi, ógleði, uppköst og hiksti.

Sjaldgæfari aukaverkanir eru hjartsláttarónot og roði eða útbrot á húð.

Mjög sjaldgæfar aukaverkanir eru truflanir á hjartslætti (óreglulegur hjartsláttur) og ofnæmisviðbrögð sem geta verið alvarleg.

Ef aukaverkanir valda erfiðleikum eða hverfa ekki skal hafa samband við lækninn.

Sum einkenni, eins og sundl, höfuðverkur og svefntruflanir, geta verið af völdum fráhvarfseinkenna þegar hætt er að reykja og geta verið vegna of lítils magns af nikótíni. Sár í munni geta komið fram þegar reykingum er hætt.

Hvernig geyma á nikótínpúða
Geymið nikótínpúða þar sem börn hvorki ná til né sjá. Púðarnir geymast best í kæli en í lagi er að geyma dósirnar við lægri hita en 25°C. Geymið í upprunalegum umbúðum. Ekki skal nota nikótínpúða eftir fyrningardagsetningu sem tilgreind er á umbúðunum. 

Pakkningar og innihald
Nikótínpúðar innihalda:
- Virka innihaldsefnið er nikótín. Hver púði inniheldur 2-12 mg af nikótíni.
- Önnur innihaldsefni í nikótínpúðum: sellulósi (örkristallaður), bragðefni, askorbýlpalmitat (E304), trínatríumfosfat, acesúlfamkalíum (E950), aspartam (E951).

Lýsing á útliti nikótínpúða og pakkningastærðir

Nikótínpúðarnir eru rétthyrndir púðar, fylltir með dufti.

Pakkningastærðir: Dolla með loki: 20-24 púðar.

Liquid error (layout/theme line 152): Could not find asset snippets/age-check.liquid